Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Í dag fer fram fyrri umræða um fjármálaáætlun til næstu fimm ára, fjármálaáætlun sem sýnir stefnu ríkisstjórnarinnar svart á hvítu að rétt sé að beita ríkisfjármálum með markvissum hætti til að ná niður verðbólgu og koma í veg fyrir frekari hækkun vaxta með auknu aðhaldi, tekjuöflun og frestun framkvæmda. Á sama tíma er lögð áhersla á að verja grunnþjónustuna, styðja áfram við viðkvæma hópa og verja lífskjör almennings. Skuldahlutfall ríkissjóðs lækkar líka á tímabilinu og afkoma batnar. Þetta er það eina rétta við núverandi aðstæður. Svo vitnað sé til orða hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra, Lilju Daggar Alfreðsdóttur: Stóra verkefnið samhliða breyttum aðstæðum er að ná niður verðbólgu sem er helsti óvinur heimila og fyrirtækja í landinu. Aðhald og skýr forgangsröðun er meginstef. Ríkisfjármálin þurfa að vinna með peningastefnu Seðlabankans til að ná jafnvægi.
Þrátt fyrir að ýmsum framkvæmdum verði frestað er staðinn vörður um framkvæmdir sem eru í gangi eða eiga að hefjast á árinu eins og við Landspítala og í samgöngu- og húsnæðismálum. Þá verður sérstaklega stutt við þá hópa, sem síst geta mætt áhrifum hærri verðbólgu, með ýmsum stuðningsaðgerðum stjórnvalda, eins og þegar er hafið með hækkun vaxtabóta og barnabóta.
Í áætluninni er líka með skýrum hætti forgangsraðað í þágu heilbrigðiskerfisins og almannatryggingakerfisins þar sem ekki er gerð aðhaldskrafa. Það þýðir að 12 milljarðarnir sem bætt var inn í heilbrigðiskerfið um síðustu áramót eru komnir til að vera. Sem formaður velferðarnefndar hef ég fylgst með vinnunni í heilbrigðiskerfinu og legg mikla áherslu á að við getum haldið áfram öllum þeim góðu verkum sem nú er unnið að.