Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 93. fundur,  31. mars 2023.

Störf þingsins.

[10:43]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Mér hafa að gefnu tilefni verið mjög hugleikin öryggismál á Austfjörðum. Í gær átti sér stað umfangsmesta rýming í þéttbýli frá eldgosinu í Heimaey árið 1973 en 800 einstaklingar voru fluttir frá heimilum sínum á Seyðisfirði. Undanfarna daga og vikur hafa veðurskilyrði raskað daglegu lífi Austfirðinga. Snjó- og aurskriðuhætta á Seyðisfirði og víðar ásamt þungum snjóum hafa skapað hættuleg skilyrði sem leiddu til þess að bærinn var rýmdur.

Það er algengt að veðurofsi og þungir snjóar trufli verulega samgöngur bæði á Fagradal og á Fjarðarheiði. Með breytingum á veðurfari vegna hamfarahlýnunar hefur hættan aukist svo um munar á svæðinu. Aurskriðurnar sem féllu úr Nautaklauf og víðar á Seyðisfirði í desember 2020 eru til marks um það.

Seyðfirðingar hafa lengi búið við ótryggar og óöruggar samgöngur. Til stóð að bjóða út Fjarðarheiðargöng síðsumars 2022. Ekki varð af þeim áformum en á fjárlögum ársins í ár voru göngin kynnt sem eitt helsta samgönguverkefni ársins 2023. Áætlaður byggingartími er sjö ár og nokkur óvissa ríkir um fjármögnunina. Það er alveg ljóst að á meðan snjó kyngir niður langt fram á vor ár hvert og Fjarðarheiðin er ófær og snjóhengjur og skriðuföll ógna öryggi íbúa þurfum við að gera miklu betur og leggja allt kapp á að flýta gerð ganganna.

Að lokum vil ég þakka viðbragðsaðilum þeim sem stóðu að rýmingu í gær fyrir vel unnin störf.