Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Ár eftir ár eru um þúsund börn án vistunarpláss í Reykjavík og sífellt fleiri fjölskyldur horfa nú ráðþrota til ríkisstjórnarinnar um að brúa bilið fyrir meiri hlutann í Reykjavík með lengingu fæðingarorlofsins. Það er tímabært að skoða lengingu fæðingarorlofsins en það verður að vera á forsendum þess að auka valfrelsi foreldra og það má aldrei gefa afslátt af því, því að rýmkun fæðingarorlofsins er ekki að fara að leysa leikskólavandann. Jafnvel í þeim löndum í kringum okkur sem hafa rýmstan tíma í fæðingarorlofi taka flestar fjölskyldur sér um 12 mánuði í orlof. En í þessum löndum er öllum börnum sem vilja tryggt leikskólapláss við 12 mánaða aldur þótt fæðingarorlofstíminn sé svona rúmur, sem segir okkur það að þegar fjölskyldur hafa raunverulegt val velja þær langflestar að fara út á vinnumarkaðinn upp úr eins árs aldri barnsins þótt sannarlega sé ágætlega stór hópur í orlofi jafnvel til 18 mánaða og enn aðrir aðeins lengur. Valfrelsið er hreyfiafl framfara og að berjast fyrir því er eilífðarverkefni okkar Sjálfstæðismanna og við höfum talað fyrir því að hækka fæðingarorlofsgreiðslurnar og auka val fólks í ráðstöfun orlofsins. Þetta er vegna þess að Sjálfstæðisflokkurinn treystir fólki og fjölskyldum fyrir því að ráða eigin fjölskyldulífi. Í dag hafa foreldrar lítið sem ekkert val og afleiðingarnar eru ömurlegar. Fólk er að lenda í fjárhagskröggum, hefur misst vinnuna jafnvel eða hefur þurft að segja henni upp og jafnvel misst húsnæði sitt líka. Þá er ómæld afturförin í jafnréttisbaráttunni. En þegar við Sjálfstæðismenn í borgarstjórn lögðum fram tillögu um heimgreiðslur eða foreldrastyrki til fjölskyldna sem fastar voru á biðlistum, felldi meiri hlutinn tillöguna og kallaði hana m.a. kvennagildru. Samflokksmenn þeirra hér segjast vera að lengja fæðingarorlofið, en hver er munurinn á því og foreldrastyrkjum á meðan meiri hlutinn í borginni (Forseti hringir.) veldur því ekki að skaffa fólki leikskólapláss? Það er nefnilega ekki valfrelsið sem er kvennagildra heldur leikskólavandinn.