Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 93. fundur,  31. mars 2023.

Störf þingsins.

[10:55]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Í vikunni legg ég fyrir Alþingi tvö ný lagafrumvörp. Frumvörpin eru bæði til þess fallin að auka frelsi einstaklinga, sannkölluð frelsismál. Hið fyrra er frumvarp þar sem lagt er til að miða skuli öll aldursskilyrði laga við 18 ára aldur. Víða í lögum er að finna svokölluð aldursmörk, þ.e. skilyrði um að einstaklingur hafi náð ákveðnum aldri áður en hann getur notið ákveðinna réttinda, öðlast ákveðin leyfi o.s.frv. Að mati flutningsmanna á að miða við sjálfræðis- og fjárræðisaldur. Hið seinna er frumvarp sem heimilar bardagaíþróttir, en undir þær falla t.d. MMA og hnefaleikar. Það er mat flutningsmanna að rök standi ekki fyrir því að skerða frelsi einstaklingsins til að iðka þá íþrótt sem honum hugnast. Jafnframt ber að hafa í huga að bannið skerðir atvinnufrelsi sem nýtur verndar 1. mgr. 75. gr. stjórnarskrárinnar. Helstu rök gegn málinu er það heilsutjón sem einstaklingar geti hlotið af keppni í bardagaíþróttum. Það er ekki hægt að vísa þessu alfarið á bug en hægt er að benda á að með því að viðurkenna íþróttina sem löglega er fyrst hægt að grípa til annarra úrræða til að grípa þá sem heilsutjón af sportinu hljóta. Skilyrði er sett í frumvarpinu um að viðeigandi öryggi sé tryggt keppendum. Þess utan glíma íþróttamenn í öllum öðrum íþróttum við alls konar meiðsli og verður að nefna sérstaklega boltaíþróttir þar sem hætta er á ítrekuðum höfuðhöggum. Einstaklingar sem ákveða að æfa og keppa í bardagaíþróttum eru fullfærir um að gera sér grein fyrir þeirri áhættu sem fylgir en við hin þurfum kannski að fara að átta okkur á fjölmörgum kostum íþróttanna.

Það er viðeigandi að leggja fram tvö frelsismál og vekja athygli á þeim hér í dag þegar við ræðum fjármálaáætlun síðar því að ekki er gert ráð fyrir því að málin hafi neikvæð áhrif á ríkissjóð heldur einmitt þvert á móti.