Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 93. fundur,  31. mars 2023.

Störf þingsins.

[11:05]
Horfa

Berglind Harpa Svavarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Mig langar að nýta tækifærið hér í dag til að benda á alvarlega stöðu á Austurlandi sem ekki hefur farið fram hjá neinum hér á landi. Mikið óvissu- og hættuástand hefur verið undanfarna daga vegna gríðarlegrar úrkomu á Austurlandi og þeirrar lífshættu sem skapast vegna snjóflóða. Snjóflóð hafa fallið í byggð á órýmt húsnæði þar sem engar varnir voru fyrir snjóflóðum. Ég vil nota tækifærið og benda á mikilvægi þess að fjármagn verði sett í nauðsynlegar varnir í Neskaupstað þar sem vantar varnargarð sem var kynntur samfélaginu fyrir stuttu og hefði þurft að vera kominn upp, en núverandi varnargarðar í Neskaupstað hafa sannað gildi sitt. Það er mikilvægt og nauðsynlegt að halda áfram að tryggja heimili fólks, tryggja byggðina.

Eftir skriðuföllin á Seyðisfirði 2020 hefur gríðarleg vinna farið fram við að hanna varnargarða í þéttbýli til að verja byggðina en svo er það alltaf niðurstaðan að það vantar fjármagn. Við verðum að finna fjármagn sem tryggir byggðina á Seyðisfirði og í Neskaupstað. Við verðum að tryggja heimili fólks og þar með öryggi þess og við hljótum öll að vera sammála um það. Einnig vil ég koma inn á samgöngur á Austurlandi, sérstaklega á þessum tímum. Vegna þessarar gríðarlegu úrkomu lokuðust samgönguleiðir, bæði Norðfjarðargöng og Fjarðarheiðargöng. Það gengur ekki að fólk sé innilokað í lífshættu í sinni byggð dögum saman við þessar aðstæður. Við erum komin aftur til sjósamgangna og við hljótum að sjá að það er ólíðandi. Það er ekki hægt að sækja heilbrigðisþjónustu, veikt fólk er flutt með þyrlu, skipum — við verðum bara að gera eitthvað í þessu. Við verðum að koma á öflugum samgöngum á Austurlandi svo að við séum ekki í sjósamgöngunum. Við verðum að tryggja samgöngur þannig að ávallt sé tryggð undankomuleið (Forseti hringir.) þegar þannig aðstæður skapast.

Ég ætlaði að hafa ræðuna mína lengri en ég næ því ekki. Ég vil bara bera fram þakkir til þeirra sem hafa staðið vaktina og staðið vörð um líf og heilsu fólks.