Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 93. fundur,  31. mars 2023.

svör við fyrirspurnum.

782. mál
[11:20]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ég kem enn og aftur hér upp og virka eins og illa rispuð grammófónsplata á 99 snúningum, alltaf í sama farinu. Frá því 11. nóvember hef ég verið með fyrirspurn hjá hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra sem er ósvarað. Ég veit ekki hvort það er svona erfitt að svara þessari fyrirspurn síðan í nóvember en eitthvað stendur þetta í þeim. Ég er að koma, held ég, í þriðja eða fjórða skiptið hérna upp til að biðja um að eitthvað verði gert í þessum málum, að maður þurfi ekki að bíða hérna mánuðum saman eftir svari sem skilar sér jafnvel ekki. En ég vona, og ég sé að hann kinkar kolli, að hann sjái til þess að svara fyrirspurninni.