Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 93. fundur,  31. mars 2023.

svör við fyrirspurnum.

782. mál
[11:24]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Ég kem hérna í sömu erindagjörðum og aðrir sem hér hafa tekið til máls. Ég er með 66 daga gamla fyrirspurn til innviðaráðherra um samráð starfshóps um endurskoðun húsaleigulaga við hagaðila og þrjár 56 daga gamlar fyrirspurnir, tvær þeirra eru til fjármála- og efnahagsráðherra um stimpilgjöld og verðbætur útlána innlánsstofnana og svo ein til félags- og vinnumarkaðsráðherra um greiðsluaðlögun einstaklinga. Mér finnst þetta frekar langur tími og myndi gjarnan vilja fá svör sem allra fyrst.