Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 93. fundur,  31. mars 2023.

svör við fyrirspurnum.

782. mál
[11:25]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Fjármálaráðherra sagði hér í gær að það væri ekki hægt að senda inn fyrirspurn nema gögnin væru til. Hæstv. forseti sagði hér áðan að fyrirspurnir væru skoðaðar í hverju tilviki fyrir sig. Það er þá orðið rosalega vandræðalegt ef búið er að skoða fyrirspurninaa, senda hana á framkvæmdarvaldið, þar sem gögnin eiga að vera til, og fyrirspurnirnar liggi þá þar inni í rúmlega hundrað daga eða lengur. Er það ekki dálítið ankannalegt? Pælum í því aðeins. Það er þá, samkvæmt forseta hér áðan, búið að skoða fyrirspurnina og spyrja: Eru þetta upplýsingar sem eru til, getum við tekið þær saman? Ókei, sendum hana áfram. Stjórnvöld taka við henni. Jú, við eigum ýmis gögn til en við ætlum að geyma fyrirspurnina í nokkra mánuði áður en við svörum henni. Þetta gengur ekki upp, það hljóta allir að sjá það. Í einhverjum tilvikum er vissulega um stórar fyrirspurnir að ræða þar sem þarf að púsla saman og gera útreikninga og búa til nýjar upplýsingar. Ég spyr hæstv. forseta aftur: Er einhver stefnubreyting þarna á ferð?