svör við fyrirspurnum.
Forseti sker auðvitað úr ef undir hann er borið álitaefni. En almennum lögspurningum af því tagi, sem forseti taldi reyndar að væru svona almenns eðlis, svarar forseti ekki af forsetastóli alveg án fyrirvara ef svo ber undir. En hins vegar gilda auðvitað þingsköp og það er full ástæða til að minna hæstv. ráðherra á að frestir samkvæmt þingsköpum til að svara fyrirspurnum þingmanna eru í gildi og þingmenn eiga rétt á því að fá þau svör sem ráðuneytið getur veitt við þeim fyrirspurnum sem lagðar hafa verið fram. Eftir sem áður verður fyrirkomulagið með þeim hætti að þingfundaskrifstofa eða skrifstofa Alþingis mun ganga á eftir því við ráðuneyti að fyrirspurnum sé svarað.