Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 93. fundur,  31. mars 2023.

svör við fyrirspurnum.

782. mál
[11:32]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Herra forseti. Ég hef áhyggjur af því að hv. þingmenn hér inni, fyrst og fremst þeir sem mynda meiri hluta, átti sig ekki á alvarleika málsins sem varð hér í gær. Það sem gerist, er að fram kemur álit frá Alþingi sjálfu, skrifstofu Alþingis, um það hvað lög um þingsköp Alþingis þýða. Í gær komu þingmenn meiri hlutans upp hver á fætur öðrum og verja hæstv. dómsmálaráðherra, sem samkvæmt téðu minnisblaði hefur augljóslega brotið lög um þingsköp Alþingis, og hv. þingmenn vilja einfaldlega vera ósammála téðu minnisblaði, mæla á annan veg og lesa lög um þingsköp Alþingis með öðrum hætti.

Mig langar til að spyrja hæstv. forseta hvernig þingið eigi að bregðast við í þessari stöðu. Það er komin upp mikil óvissa um það hvernig eigi að túlka lög um þingsköp Alþingis þegar Alþingi er ekki sammála sjálfu sér.

Svo langar mig til að spyrja hv. þingmenn meiri hlutans hvort þau telji sig vera þingmenn sem hafa hlutverk sem þingmenn á grundvelli stjórnarskrárinnar, (Forseti hringir.) eða hvort þeirra eina hlutverk hér á þingi sé að verja ríkisstjórnina, sama hvað gerist.