Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 93. fundur,  31. mars 2023.

svör við fyrirspurnum.

782. mál
[11:33]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég vil koma hérna upp einfaldlega til að taka undir með þingmönnum stjórnarandstöðunnar. Ég sé ekki að stjórnarþingmenn séu að tjá sig um þetta. Það er svo veigamikið gangverk þingsins að geta beitt þessu verkfæri, að geta beitt fyrirspurnum og auðvitað líka að fá svör. Ég verð að segja að mér finnst þetta seinna kjörtímabil ríkisstjórnarinnar fela í sér ákveðna hnignun gagnvart því hvernig komið er fram við Alþingi Íslendinga. Ég biðla til forseta Alþingis að sýna það í verki að hann sé forseti þingsins, að hann standi með þinginu þannig að hann beiti sér og beiti sér af þunga, þannig að ráðherrar ríkisstjórnarinnar hætti að komast upp með það trekk í trekk að einfaldlega að svara ekki spurningum frá Alþingi Íslendinga. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)