Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 93. fundur,  31. mars 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[12:22]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir andsvarið. Það er eitt atriði sem mig langar að spyrja hæstv. fjármálaráðherra um, það er þetta sameiginlega verkefni sem hann talar um á bls. 18 í fjármálaáætluninni, með leyfi forseta:

„Til skemmri tíma er fjármálaáætlun því ætlað að leggjast á sveif með Seðlabankanum við að ná verðbólgu sem fyrst aftur að markmiði.“

Ég get ekki lesið það að fjármálastefnan sé að berjast gegn verðbólgunni með nægjanlegum hætti þegar seðlabankastjóri er búinn óska eftir hjálp. Við getum barist gegn verðbólgunni með tvennum hætti, með peningamálastefnu og fjármálastefnu. Jú, vissulega eru aðilar vinnumarkaðarins þarna líka en þeir eiga að sjálfsögðu hlutdeild í arðsemi fyrirtækja eins og aðrir. En það breytir því ekki að ég get ekki séð að þetta sé sjálfstæð barátta gegn verðbólgunni. Það á bara að leggjast á sveif með Seðlabankanum. Það væri gaman að heyra fjármálaráðherra útskýra það.

Virðulegur forseti. Lengi hefur verið lofað að ráðast í heildarendurskoðun almannatrygginga. Forsætisráðherra lofaði því í 30. skiptið við kynningu þessarar áætlunar fyrr í vikunni. Ég get ekki séð að þessi áætlun taki mið af þeim fyrirætlunum. Ef frá eru dregin fjárframlög vegna lýðfræðilegrar þróunar og fólksfjölgunar og verðbætur til að tryggja að lífeyrir almannatrygginga haldi í við verðbólgu get ég ekki lesið annað úr þessari áætlun en að ríkisstjórnin stefni á að endurskoða almannatryggingar án þess að sú endurskoðun leiði til bættra kjara almannatrygginga, þ.e. endurskoðunin verður aðeins til málamynda. Ég vona innilega að hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra geti sefað áhyggjur mínar og svarað því hverju sætir. En það er alveg ljóst að í þessu skjali, eða öllu heldur þessari bók, er ekkert um bætt kjör fyrir öryrkja og eldri borgara, fátækustu hópa samfélagsins sem finna hvað mest fyrir hækkandi verðbólgu og háum stýrivöxtum.