fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Herra forseti. Ég þakka kærlega fyrir svarið. Ég vil einfaldlega segja að ef allir í Sjálfstæðisflokknum væru eins og Haraldur Benediktsson þá væri það miklu betri flokkur. Ég vil einfaldlega segja að ég kem til með að sakna þess mikið að vinna með hv. þm. Haraldi Benediktssyni í fjárlaganefnd eftir sex og hálfs árs samstarf. Það hafa ekki verið neitt nema góð samskipti og alltaf málefnalegt að spjalla við hann. Ég vonast eftir því að meira verði af því einhvern tímann í framtíðinni, ég verð bara að segja eins og er. Takk kærlega fyrir samstarfið.