stjórn fiskveiða.
Herra forseti. Ég er alls ekkert viss um að hæstv. ráðherra sé betur til þess fallinn að greina frá stefnu Vinstri grænna í sjávarútvegsmálum, alls ekki. Hana er að finna á heimasíðu VG og allt sem hæstv. ráðherra hefur gert er að segja að hún standi með smábátasjómönnum. Jú, jú. En hver eru verkin, herra forseti? Hvar eru verkin? Hún rak strandveiðiflotann í land 21. júlí í fyrra. Og hvar eru verkin nú? Hefur hún tryggt einhvern afla í strandveiðarnar, t.d. eitthvað af því sem átti að fara til byggðakvóta eða þess háttar? Nei, hún hefur ekki gert það. Það er verið að búa til hérna ákveðna kreppu. Svo er það auðvitað ekki svo að allur afli sé upp á kíló. Það er óvissa í þessu og hluti aflans er ekki talinn með inn í þessar aflaheimildir sem hún þykist vera nauðbeygð til að beygja sig undir og þetta sé svo nákvæm ráðgjöf að hún sé nánast upp á kíló og hún geti ekkert annað gert. Herra forseti. Hún er búin að vera hér í embætti um árabil (Forseti hringir.) eða frá því að þessi ríkisstjórn tók til starfa (Forseti hringir.) og henni hefði verið í lófa lagið að tryggja veiðiheimildir ef hún telur sig vera bundna af þessari ágætu ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar.