Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 94. fundur,  17. apr. 2023.

orkustefna.

[15:40]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Virkjanapressan hefur náð nýjum hæðum, var þó mikil fyrir. Í þágu orkuskipta er botnvirkjunarstefna hægri flokkanna allt í einu komin með nýtt nafn, heitir ekki lengur stóriðjustefna heldur á núna að virkja, virkja, virkja í þágu óskilgreindra orkuskipta. Þessi losarabragur á skilgreiningum, þessi losarabragur á því hvernig við nálgumst verkefnið, er stórhættulegur, vegna þess að við vitum að eftirspurn eftir grænni raforku er endalaus á næstu árum og áratugum.

Hér fyrir ári dró skýrsla um stöðu og áskoranir í orkumálum saman nokkrar sviðsmyndir. Upphaflega stóð til að kalla þessa skýrslu grænbók en þegar upp var staðið var ekki vandað nógu vel til verka til að ritið stæði undir því nafni og þess vegna var þetta bara stöðuskýrsla. En í þessari skýrslu voru dregnar saman helstu óskir hagsmunaaðila. Náttúruverndarsamtök komu inn með hugmyndir um að ná fullum orkuskiptum án frekari virkjana. Þeim hugmyndum var ýtt til hliðar. Þær hugmyndir sem lyft var komu frá virkjanaaðilunum sjálfum og snúast um allt að 125% aukningu í orkuframleiðslu; meira en tvöföldun á framleiðslu í því landi sem framleiðir nú þegar langmest í heimi. Nú voru flokksgæðingar settir í að koma til framkvæmdar sennilega ýktustu sviðsmyndinni í þessari stöðuskýrslu. Það var stofnaður starfshópur fyrir nokkrum dögum til að kanna möguleika til bættrar orkunýtingar og -öflunar þar sem á að fara að skafa ýmislegt upp til að fylla upp í þessa öfgamynd. Á hvaða forsendum var ákveðið að grænbók yrði grundvöllur þeirrar vinnu? (Forseti hringir.) Hvar átti sér stað sú umræða á pólitískum vettvangi að tvöfalda orkuframleiðslu Íslands? (Forseti hringir.) Á orkustefna Íslands ekki betra skilið en þetta?