fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Forseti. Í skýrslu leigjendasamtakanna kemur fram að húsnæðisbætur hafa ekki haldið í við þróun verðlags. Það ætti ekki að koma neinum á óvart en verðlag hefur hækkað þó nokkuð mikið meira, sérstaklega leigu- og húsnæðisvísitalan. Nú veltir maður því fyrir sér — af því að það eru ákveðnar efasemdir uppi um t.d. lögmæti þess að hafa lán á breytilegum vöxtum, ákveðin mál í gangi hvað það varðar, og það hafa alltaf verið dálitlar efasemdir um vísitölutengingu húsnæðislána t.d. og hvað þá í rauninni vísitölutengingu verðlags við húsaleigu, þ.e. að samningar um húsaleigu séu vísitölutengdir, að í hverjum mánuði hækki þeir samkvæmt vísitölu neysluverðs. Það hefur óhjákvæmilega áhrif á stefnu stjórnvalda með tilliti til húsnæðisbóta, þ.e. að setja fram húsnæðisbætur sem eru ekki vísitölutryggðar á móti hins vegar núna leigumarkaði sem er orðinn gegnumgangandi vísitölutryggður en var það ekki áður. Það tíðkaðist ekki hérna fyrir 20 árum síðan að húsaleigusamningar væru vísitölutengdir en eitthvað breyttist á undanförnum árum að allir samningar eru í rauninni orðnir vísitölutengdir. Það hefur óhjákvæmilega áhrif á húsnæðisbætur ríkisins þar sem þær rýrna í raun í verðgildi yfir allt árið sem þær voru samþykktar fyrir. Þannig að ég velti fyrir mér hvort ráðherra sé með einhverjar lausnir hvað þessa víxlverkun varðar. (Forseti hringir.) Eigum við ekki að fara að rjúfa þennan vítahring sem vísitölutengingarnar eru alltaf að búa til alls staðar í kerfinu hjá okkur, (Forseti hringir.) vísitölutengingin sem smitast sjálfkrafa síðan í vísitöluna sjálfa og býr til hækkun verðbólgu, bara með því að vera til staðar í samningunum?