fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sitt góða og skýra svar. Mig langar að halda áfram með þessa umræðu því að ég held að það sé mjög mikilvægt að við nýtum tímann vel og nú fer í hönd sauðburður og fram undan er mikill annatími hjá bændum en miðað við það sem maður heyrir og tekur spjall við bændur hingað og þangað þá vilja menn ganga mjög rösklega til verks, taka sem flest sýni bara helst í vor þar sem við getum þá unnið úr þeim í sumar og þá erum við komin með ákveðnar vísbendingar varðandi við líflambaval og þess háttar í haust.
Það verður að minnast á það að Íslensk erfðagreining kom eitthvað fram hérna um helgina og bauð fram aðstoð sína í þessu verkefni sem er bara vel. En ég tel í þessu samhengi að við þurfum að hafa hraðar hendur því vissulega er hugur okkar núna hjá Miðfirðingum, það er ekkert launungarmál. Aftur á móti er það þannig að riðan hefur náttúrlega komið upp mjög víða um land í gegnum árin og þeir bændur sem hafa t.d. lent í því að það var skorið niður vegna riðu tvisvar sinnum á undanförnum áratugum kalla eftir þessu og það er kallað eftir þessu mjög víða. Og ég minni á það í þessu samhengi að Miðfjarðarhólfið var hreint hólf sem gerir það að verkum að þetta er enn alvarlegra. Þannig að það er mikilvægt að við látum hendur standa fram úr ermum öll sem eitt og förum af krafti í þessar sýnatökur til að greina og reyna að finna (Forseti hringir.) þessar fágætu kindur til að að koma hér í stofninn vítt og breitt um landið.