Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 94. fundur,  17. apr. 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[19:07]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Það er nú ekki þannig í greinargerð með fjármálaáætlun að þar sé farið í nákvæmar útfærslur á breytingum á lögum um stjórn fiskveiða heldur miklu frekar að við séum að lista upp með hvaða hætti við sjáum þessa meginstrauma í bæði útgjöldum og tekjum ríkissjóðs sem síðan er útfært fyrir hvert ár um sig í fjárlagafrumvarpi og tekjubandormi. Ég skil það vel að hv. þingmaður kjósi að orða það sem svo að hann gefi ekkert fyrir þessi orð — og allt í lagi með það. Ég vil samt geta þess að í vinnunni um Auðlindina okkar, sem ég er mjög ánægð með — ég held að þar hafi verið kölluð fram bara mjög áhugaverð viðfangsefni og verkefni, m.a. skoðanakönnunin sem hefur verið sums staðar til umræðu í dag. Við héldum níunda fund samráðsnefndarinnar í dag og þar var m.a. verið að ræða um mögulega uppboðsleið vegna þess að við vildum ræða þau mál og við vildum fjalla um það frá þeim sem best þekkja til og hafa kafað djúpt í þá nálgun, vegna þess að ég segi það núna, eins og ég hef alltaf sagt, að mér finnst skipta miklu máli að þessi vinna sé þannig að hún sé opin og gagnsæ og hún sé heiðarleg og einkennist ekki af sýndarmennsku heldur raunverulegum umræðum. Það sem er meginatriðið hér í fjármálaáætlun, og á þessari dýrmætu bls. 59 sem hv. þingmaður vísar til, er að þar er gert ráð fyrir auknum tekjum í ríkissjóð og útfærsla bíður betri tíma.