fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Frú forseti. Þetta er í raun vinna sem þarf að fara í og það er eins og alltaf, ef það þarf að eyða minni peningum á næsta ári en gert hefur verið þá eru nokkrar leiðir til þess. Það er auðvitað gríðarlega hátt hlutfall rekstrar bundið annars vegar í launakostnað og svo í ákveðin verkefni þannig að það er spurning hvar þú sækir þessa fjármuni eða kemur því þannig við að þeim verði ekki varið í eitthvað sem þeim er varið í núna. Ég held að það skipti máli að við séum með nægt súrefni til að sinna þeim verkefnum sem við ætlum að sinna og sinna þeim almennilega og frekar þá horfa í það með gagnrýnum hætti hvort það séu einhver verkefni þarna sem kosta og tína það til sem í felst einhver forgangsröðun, segja bara: Þetta er eitthvað sem væri gott að geta gert en við ætlum að forgangsraða í önnur verkefni og standa vörð um þau.
Ég geri alveg ráð fyrir því að þetta verkefni verði ekki auðvelt en ég er hins vegar alveg sannfærð um að það er hægt, rétt eins og venjulegt fólk þarf reglulega að gera þegar heimilisbókhaldið segir að þess þurfi og ekki ætla ég að kveinka mér undan því. Ég nefni þá aftur, í því samhengi sem ég nefndi í minni fyrri ræðu, það að leyfa okkur aðeins að horfa til þess að það má alveg spyrja sig hvort stundum megi brjóta aðeins upp grunninn og endurraða legókubbunum einhvern veginn. Þetta er ekki alltaf óumdeildur grunnur sem síðan er alltaf byggt ofan á. Þetta er bara verkefni sem við þurfum að taka að okkur og ég veit að við munum finna leiðir til að standa vörð um þau verkefni sem þarf að standa vörð um.