fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegi forseti. Ég mun fjalla um þau málefnasvið sem heyra undir menningar- og viðskiptaráðuneytið. Fyrst verður farið yfir málefnasvið 18, sem er menningin. Næst verður farið yfir málefnasvið 14, ferðaþjónustu. Svo málefnasvið 19, fjölmiðla, og að lokum er það málefnasvið 16, markaðseftirlit og neytendamál.
Framtíðarsýn stjórnvalda fyrir málaflokka lista og menningar er að Ísland skipi sér í fremstu röð á þessum sviðum. Allir landsmenn eiga að geta aukið lífsgæði sín með þátttöku í öflugu og fjölbreyttu starfi. Málefnasviðið í heild hefur sterka samsvörun við velsældarmarkmið ríkisstjórnarinnar. Meginmarkmið stjórnvalda á sviði menningar og lista er að jafna og bæta tækifæri til ný- og atvinnusköpunar í menningarstarfsemi, listum og skapandi greinum. Þannig er stefnt að því að auka verðmæti í skapandi greinum, auk þess sem áhersla er lögð á varðveislu, aðgengi og miðlun menningararfs þjóðarinnar, uppbyggingu innviða og á að efla íslensku/íslenskt táknmál sem opinbert mál á Íslandi.
Helsta áherslan á árunum 2024–2028 verður á íslensku og setur tungumálið okkar í öndvegi. Þróun og framtíð íslensku á tímum örrar alþjóðavæðingar og tæknibyltinga er mikilvæg til að styðja við stöðu þjóðtungunnar. Helstu áskoranir og tækifæri eru margvísleg. Þar má m.a. nefna íslensku og íslenskt táknmál. Tillaga til þingsályktunar um að efla íslensku sem opinbert mál á Íslandi er í vinnslu og fjallar um mikilvægi tungumálsins og nauðsyn þess að tryggja að það verði notað áfram á öllum sviðum samfélagsins. Tillaga til þingsályktunar um fyrstu opinberu málstefnuna um íslenskt táknmál er í vinnslu. Þar er gert ráð fyrir að staða íslenska táknmálsins verði skýrð og hún unnin í samræmi við drög að íslenskri málstefnu.
Virðulegi forseti. Nú mun ég fara yfir þær stefnur sem eru í farvatninu. Fyrst ber að nefna tónlistarstefnu. Íslensk tónlist hefur alla burði til að geta orðið stöndugur atvinnuvegur og mun stofnun tónlistarmiðstöðvar ásamt tónlistarstefnu styrkja innviði greinarinnar. Unnið verður að því að auka sýnileika íslenskrar tónlistar á stærstu alþjóðlegu streymisveitum og tryggja réttlátari hlut. Næst ber að nefna hönnun og hönnunarstefnu. Ný hönnunarstefna og aðgerðir í hennar nafni miða að því að auka vægi hönnunar í íslensku atvinnulífi og skila vaxandi árangri, fagmennsku og gæðum til hagsbóta fyrir íslenskt samfélag. Ég er sannfærð um að þar eru mörg ónýtt tækifæri og er það markmið ráðuneytisins að nota hönnunarhugsun á öllum sviðum. Á Norðurlöndunum hefur það gefist mjög vel að færa sig í þessa átt og skilað miklum verðmætum inn í hagkerfi viðkomandi þjóða.
Stafræn skráning menningarverðmæta, átak í skráningu og endurgerð menningarverðmæta safna í eigu ríkisins bætir aðgang almennings að menningararfinum, stuðlar að rannsóknum og varðveitir hann fyrir komandi kynslóðir. Undirbúa skal viðbrögð vegna þeirrar hættu sem stafar að safnkosti vegna loftslags- og náttúruvár og annarra hamfara.
Við erum í stórátaki er varðar tölulegar upplýsingar. Unnið er að þróun hagvísa fyrir menningu og birtingu tölfræði um menningarþátttöku. Ef við lítum á heildarútgjaldaramma málefnasviðsins er hann tæpur 21 milljarður árið 2023 en mun lækka í 18,4 milljarða kr. fyrir árið 2028 og er það lækkun sem nemur um 2,5 milljörðum. Helstu breytingarnar eru að 500 millj. kr. tímabundið fjárfestingarframlag mun falla niður á tímabilinu. Þá munu falla niður 220 millj. kr. framlög vegna tímabundinna styrkja frá fjárlaganefnd og önnur tímabundin framlög sem nema tæpum milljarði.
Ef við förum næst í málefnasvið 14 þá er leiðarljós og framtíðarsýn íslenskrar ferðaþjónustu til ársins 2030 að vera leiðandi í sjálfbærri þróun á grunni efnahagslegs og samfélagslegs jafnréttis. Þar erum við einnig að vinna að ferðamálastefnu til ársins 2030. Ef við förum í málefnasvið 19 er þar helst að finna aukningu í þeim málaflokkum sem ég ber ábyrgð á en þar verður tæpum 2 milljörðum kr. aukalega úthlutað til frjálsra fjölmiðla.