fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegi forseti. Eins og ég nefndi áðan er það á stefnuskránni að kynna fjölmiðlastefnu sem á í raun og veru að boða ákveðna byltingu á starfsumhverfi fjölmiðla. Í fyrsta lagi með því að kerfið í kringum fjölmiðla verði meira hvetjandi, þ.e. að það sé ákveðin hvatning til þess að almenningur gerist í auknum mæli áskrifandi að fjölmiðlum. Ég held að það verði mjög jákvæð áhrif af því vegna þess að það sem hefur verið að gerast, eins og hv. þingmenn vita, er að tekjumódel fjölmiðla hefur gjörbreyst á síðustu tíu árum. Fjölmiðlar fjármögnuðu sig áður fyrr með auglýsingatekjum en núna, vegna þeirrar tæknibyltingar eða stafrænu byltingar sem við stöndum frammi fyrir, hefur það auðvitað breyst.
Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni um mikilvægi þess að vera með heildstæða stefnu og hún mun felast í því að umhverfi þeirra verður gert betra og meira hvetjandi, felast í samráði og samvinnu okkar fjármála- og efnahagsráðherra um að ná betur utan um erlendu efnisveiturnar og líka að taka tillit til þeirrar þróunar sem er að eiga sér stað alþjóðlega. Það er svo að það er aðeins nýlega sem aðrar þjóðir fóru að gera kröfu um ákveðið menningarframlag sem er þá tekið af eða óskað eftir af þessum erlendu streymisveitum. Þannig að allt þetta er undir og ég get alveg skilið það og ég segi að þetta sé kannski sá málaflokkur þar sem helstu áskoranirnar hafa verið vegna þessara ofboðslegu breytinga sem við stöndum frammi fyrir. En ég verð að segja að ég tel að við sjáum að einhverju leyti til lands og liður í því er líka að ná betur utan um og endurskoða hlutverk Ríkisútvarpsins í þessum breytta heimi.