fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Frú forseti. Ég ætla að grípa niður í það sem mér heyrist vera vinsælasta umræðuefnið sem beint er að hæstv. ráðherra, þ.e. staða fjölmiðla á Íslandi. Ég held að það sé alveg ljóst af þeim umræðum sem hér hafa farið fram að það eru miklar áhyggjur víða af stöðu fjölmiðla á Íslandi í dag og ekki lítið tilefni til. Á heimasíðu ráðuneytisins sagði 29. mars sl., með leyfi forseta:
„Í fjármálaáætlun verður 400 millj. kr. veitt til aukins stuðnings við fjölmiðla til að tryggja fjölbreytni á fjölmiðlamarkaði í samræmi við stjórnarsáttmála. Um er að ræða aðgerðir í tengslum við nýja fjölmiðlastefnu sem stefnt er á að kynna síðar á árinu að loknu samráði við helstu hagaðila.“
Talaði hæstv. ráðherra þar um að skapa hvata og auka samkeppni á fjölmiðlamarkaði með því að leggja til skattalegan stuðning við einkarekna fjölmiðla til viðbótar við núverandi styrkjakerfi, auk þess sem unnið verði að því að draga úr umsvifum Ríkisútvarpsins á samkeppnismarkaði.
Spurningarnar sem mig langar til að beina til hæstv. ráðherra lúta einmitt þessu. Fyrsta spurningin er: Hvað nákvæmlega erum við að tala um varðandi þennan skattalega stuðning? Í fjármálaáætluninni sjálfri er í raun einungis tilgreint að það skuli fjölga styrkþegum, það eigi að efla styrkjakerfið, en einnig rætt um fjölgun blaðamanna á ritstjórnum einkarekinna fjölmiðla og rannsóknir til að efla fjölmiðlalæsi, þó að markmiðin um úrbætur þar mættu kannski vera metnaðarfyllri. Hér áðan talaði hæstv. ráðherra um hvata til að gera einstaklingum auðveldara að kaupa áskrift að fjölmiðlum. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Eru fastmótaðar hugmyndir um þetta eða er þetta bara einhver pæling sem enn einn starfshópurinn á að útfæra? Í skýrslu eins slíks starfshóps sem kom árið 2018 voru settar fram skýrar tillögur á því sem þyrfti að gera til að bjarga sjálfstæðri fjölmiðlun á Íslandi. Eina tillagan sem hefur komist til framkvæmda nú fimm árum síðar er styrkjakerfið. Í athugasemdum bæði hagsmunaaðila og annarra sem hafa látið sig málið varða kemur hins vegar fram, og það hefur verið lögð áhersla á það, að styrkjakerfið í núverandi mynd dugi ekki til. Og það er ekki eins og það hafi ekki verið settar fram skýrar tillögur um það hvað þurfi að gera. Efst á blaði eru auglýsingatekjur sem fara núna úr landi með auknum umsvifum samfélagsmiðla og erlendra streymisveitna í fjölmiðlaumhverfi okkar.
Það sem mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra að er: Getur ráðherra upplýst um vankantana á þessu, hvers vegna þetta er ekki fyrir löngu gengið í gegn? Þá kannski fyrst og fremst varðandi skattlagningu auglýsingatekna sem fara úr landi. Mér skilst að það sé engin þörf á því að finna upp hjólið í þessum efnum þar sem þetta er gert í öðrum löndum. Ég spyr hæstv. ráðherra: Hvað stendur þessu í vegi?