Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 95. fundur,  18. apr. 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[15:17]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Það er nú gott að enda á léttu nótunum hjá hv. þingmanni. Hv. þingmaður spyr: Hvað erum við eiginlega að fá fyrir þessa peninga? Við getum byrjað á að ræða bara framlög til rannsókna og nýsköpunar. Hverju hafa þau skilað? Jú, þau hafa skilað svo miklu sterkari þekkingargeira í íslensku samfélagi, þekkingargeira sem er að skila okkur margföldum verðmætum, útflutningstekjum. Við getum hreinlega litið á þessi framlög sem fjárfestingu, fjárfestingu í fjölbreyttara atvinnulífi sem byggir á aukinni þekkingu. Hverju eru aukin útgjöld til heilbrigðismála að skila? Ég held að þau séu að sýna okkur hversu mikilvægt það var að fara í ákveðinn viðsnúning þegar kom að heilbrigðismálunum, t.d. bara með því að draga úr greiðsluþátttöku fólks, sem við höfum verið að draga úr jafnt og þétt á hverju ári til að draga úr kostnaði fólks við að sækja sér nauðsynlega heilbrigðisþjónustu. Við höfum verið að auka framlög til geðheilbrigðismála. Þar er mikið verk óunnið, vissulega, en sýnir líka hversu mikil þörfin var. Og svo er það spítalinn, sem ég hef nú nefnt hér, sem við höldum áfram að byggja og er kannski mikilvægasta fjárfesting sem við stöndum í sem samfélag.

Hv. þingmaður nefnir hér viðbyggingu við Stjórnarráðið og hann hefur tekið eftir því væntanlega að fjárframlögum til hennar er frestað, raunar ekki í fyrsta sinn. Ég mun nýta það tækifæri til að fara yfir þessi áform um viðbygginguna, kannski ekki síst vegna þess að hér inni er líka tillaga um Stjórnarráðsreitinn. Allmargir þingmenn úr allmörgum flokkum eru á þeirri tillögu þar sem rætt er um mikilvægi þess að horfa á Stjórnarráðsreitinn sem eina heild. Ég held að það sé mikilvægt að við skoðum þessi áform, hvort um er að ræða of umfangsmikla byggingu. Síðan vil ég líka nefna það að ríkið á auðvitað hús, mjög merkileg hús, ég nefni t.d. gamla Hæstaréttarhúsið, sem mætti hugsa sér að fengju aukin hlutverk í Stjórnarráðinu og stjórnsýslunni. Ég held að við séum ekki að nýta gömul hús eins mikið og við gætum, sem ég ætla að veðja á að sé það eina sem hv. þingmaður gæti mögulega verið sammála mér um í þessari umræðu. (Gripið fram í.)