fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir. Ég fagna því að sjálfsögðu ef það eru uppi áform um að byggja yfir lögregluna á Suðurnesjum. Við þekkjum það svo sem að húsnæðiskostur lögreglunnar þar er algerlega óviðunandi og gæti til framtíðar staðið í vegi fyrir breytingum á skipulagi sem er verið að endurskoða í Reykjanesbæ. Ég fagna að sjálfsögðu allri þeirri fjölgun sem hæstv. ráðherra nefnir en ég velti því fyrir mér hvort þessi fjölgun t.d. á Suðurnesjum sé ekki öll að fara upp í flugstöð. Fer eitthvað til almennu lögreglunnar í sveitarfélögunum sjálfum eða er eingöngu verið að auka við mannafla í flugstöðinni sjálfri?
Hæstv. ráðherra hefur m.a. minnst á vinnutímastyttingu sem hefur komið niður á löggæslunni. Ég held að ég hafi einhvern tímann heyrt tölurnar, að laun 50–70 lögreglumanna hafi hreinlega horfið við vinnutímastyttinguna, þannig að við vissum af því að áður en vinnutímastyttingin átti sér stað var ákveðinn skortur til staðar. Þá veltir maður fyrir sér: Hafa þeir fjármunir sem hafa bæst inn í málaflokkinn ekki eingöngu farið þá í það að bæta upp fyrir þá vinnutímastyttingu sem átti sér stað? Það var að sjálfsögðu til að bæta aðstæður og launakjör þeirra sem í starfi voru en gerir þetta nokkuð meira heldur en bara að fjármagna þessa vinnutímastyttingu sem átt hefur sér stað?