fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegur forseti. Ég þakka svar en spurning mín er þessi: Hvað er því til fyrirstöðu að veita almennt ótakmarkað leyfi til þess að vinna eins mikið og maður vill? Það kostar engan neitt. Þeir sem vilja vinna, fínt, og þeir sem ekki vilja vinna af því að þeir eru svo hræddir um að ná ekki árangri í sínu námi, þá bara vinna þeir ekki með. Það liggur ljóst fyrir að þeir sem vinna, annaðhvort í því fagi sem þeir eru að læra eða í einhverjum öðrum fögum, ég tala nú ekki um í þjónustustörfum, sem eru rosalega þroskandi, það kostar engan neitt að leyfa þetta. Ég veit að það þarf að endurskoða námslánakerfið en þetta er alveg utan við þær pælingar hvað þarf að endurskoða og hvað þarf ekki endurskoða. Það þarf ekkert að endurskoða þetta, bara leyfa þetta og málið er dautt.