fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra svörin sem enn og aftur undirstrika mikilvægi breytinganna sem fjármálaáætlunin styður við. En nú sný ég mér að málefnasviði 22, framhaldsfræðslunni. Ég er þeirrar skoðunar að ýmis tækifæri skapist við að samtvinna framhaldsfræðsluna og vinnumarkaðsmálin í sama ráðuneyti en samstarf við önnur skólastig er eftir sem áður afskaplega mikilvægt, enda fer megnið af símenntun landsmanna fram í gegnum hefðbundna skólakerfið og því þurfa að vera greiðar leiðir á milli þess og framhaldsfræðslunnar. Ég fagna flestu í umfjöllun um framhaldsfræðsluna í fjármálaáætlun, eins og t.d. mikilvægi gagnsærra kerfis, en á þessu sviði ber félags- og vinnumarkaðsráðuneytið ábyrgð á almennri stefnumótun, stjórnsýslu, gæðaeftirliti, viðurkenningu fræðsluaðila og fræðslusjóði. Þarna eru að verða breytingar þar sem mikilvægt er að gæta að því að tapa ekki því sem er gott nú þegar. þ.e. að fleygja ekki barninu út með baðvatninu.
Ein af þeim breytingum sem nú stendur fyrir dyrum eru breytingar á hlutverki Menntamálastofnunar sem hefur m.a. séð um vottun námskráa. Mér er ekki ljóst hver tekur við vottun námskráa framhaldsfræðslunnar né heldur hvar þær námskrár sem nú hafa verið samþykktar verða vistaðar. Hvað getur hæstv. ráðherra sagt mér um það? Verða þessar námskrár ekki áfram í fullu gildi? Hvar verður svo faglegri forystu í kennslufræðum og námsefnisgerð fyrir íslenskukennslu fyrir útlendinga sinnt? Það verður einhver að hafa það hlutverk. Það er fjöldinn allur af mjög færu fólki að kenna íslensku um land allt. Flestir gera það í stundakennslu, hafa ekki aðgang að ráðgjöf, símenntun eða góðu námsefni. Jafnvel hafa verið hindranir við nýtingu námsefnis á milli skóla og skólastiga. Hvað er verið að gera til að bæta úr á þessu sviði?