Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 95. fundur,  18. apr. 2023.

aðbúnaður, hollustuhættir og öryggi á vinnustöðum.

940. mál
[22:12]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er hvorki um efri eða neðri mörk að ræða á stærð fyrirtækja. Ég held að hér sé nú um að ræða skyldu á fyrirtæki sem er ekki mjög íþyngjandi. Það er samt ekki sagt til um hvernig eigi að gera þetta og það er einmitt hugsað til þess að minni fyrirtæki þurfi ekki endilega að koma sér upp flóknu tölvuskráningarkerfi en þurfi að geta staðið skil á þessum upplýsingum, sem mér finnst vera algjört grundvallaratriði. Það er algjört grundvallaratriði að fyrirtæki geti sýnt fram á hvernig vinnutíma, hvíldartíma og frídögum hefur verið háttað. Þetta snertir mjög grundvallarréttindi þeirra sem á vinnumarkaði eru og á að auðvelda, ef eitthvað kemur upp á, ef áhöld eru um að það sé t.d. brotið á starfsfólki, að stjórnvöld geti með auðveldari hætti og viðkomandi einstaklingur geti með auðveldari hætti kallað fram upplýsingar máli sínu til stuðnings. Tilskipunin gerir ekki ráð fyrir þessum mörkum en það verður auðvitað að uppfylla það sem fram kemur í frumvarpinu.