efnahagsástand á Íslandi.
Forseti. Við búum í samfélagi þar sem þernur eru 17 ár að vinna sér inn árstekjur stjórnarformanns fyrirtækis. Við búum í samfélagi þar sem olíuflutningabílstjórum dygði varla starfsævin til að vinna sér inn árstekjur forstjórans. Þetta er galin staða. Í ofanálag greiða fjármagnseigendur nærri helmingi lægri skatt en venjulegt launafólk, þau sem leigja aðgang að auðlindinni okkar á spottprís greiða sér út milljarða í arð, fjármagnstekjur hafa aldrei verið hærri og hafa fengið að vaxa upp úr öllu valdi, þrátt fyrir óðaverðbólgu, og rekstrarhagnaður íslenskra fyrirtækja á árunum 2021–2022 var sá mesti á öldinni og hlutfall hagnaðar af tekjum þeirra hefur aldrei mælst hærra en á árinu 2021. Og þetta er í verðbólguástandi sem er verulega farið að bíta almenning, en verðbólgan mælist nú 9,8% og hefur ekki verið hærri síðan hrunárið 2009.
Forsætisráðherra sagði fyrir stuttu í viðtali að launafólk gæti ekki borið eitt þungann af baráttunni við verðbólguna heldur verði atvinnurekendur, með leyfi forseta:
„… að sýna ábyrgð og gæta hófs í arðgreiðslum en leita fremur allra leiða til að koma í veg fyrir að hækkun á vöru og þjónustu leiti út í verðlagið.“
Forseti. Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra hver sé eiginlega tilgangur þessarar yfirlýsingar. Hefur hún ekki betra verkfæri sem forsætisráðherra en að biðja atvinnurekendur og fjármagnseigendur fallega að haga sér? Þá er rétt að spyrja í framhaldinu: Hvað ætlar hæstv. ráðherra að gera ef atvinnurekendur svara ekki þessu kalli? Hver eru næstu skref?