Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 96. fundur,  19. apr. 2023.

efnahagsástand á Íslandi.

[15:21]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Spurning mín til hæstv. forsætisráðherra var hver væri tilgangur þessarar yfirlýsingar, út af því að mér finnst liggja í augum uppi að forsætisráðherra hljóti að hafa verkfæri til að skerast í leikinn þegar það er svona gríðarlegur hagnaður hjá fyrirtækjum, hjá fyrirtækjaeigendum og miklar arðgreiðslur á tímum verðbólgu eins og við erum að ganga í gegnum í dag, sem er að bíta almenning. Það hljóta að vera til verkfæri sem almennilega bíta og skerast í leikinn frekar en að grátbiðja fjármagnseigendur um að haga sér og taka þátt. Hvað með t.d. alvöruhvalrekaskatt á fyrirtæki sem sýna methagnað á verðbólgutímum? Er þetta eitthvað sem hefur komið til umræðu, því að mér þykir það augljóst ef forsætisráðherra trúir því staðfastlega að það þurfi að vera einhver ábyrgð á herðum fjármagnseigenda, á herðum atvinnurekanda, þá þurfi að sækja þennan pening en ekki bara biðja fólk um að haga sér aðeins betur í núverandi ástandi. (Forseti hringir.)

Ég ætla bara að ljúka þessu með því að tala um að núverandi ástand er augljóst og þær aðgerðir sem hefur verið farið í eru ekki að bíta.(Forseti hringir.) Þannig að ég spyr aftur: Hvað ætlar forsætisráðherra sér með þessum orðum sínum til fyrirtækja og atvinnurekanda? (Forseti hringir.) Eiga engar raunverulegar aðgerðir að fylgja til að taka á þessu ástandi þannig að við sjáum árangur af því strax?

(Forseti (LínS): Forseti vill minna hv. þingmenn á að virða ræðutíma.)