Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 96. fundur,  19. apr. 2023.

Evrópska efnahagssvæðið.

890. mál
[18:41]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M) (andsvar):

Herra forseti. Hæstv. ráðherra leitar í einhvers konar neyðarskýli ríkisstjórnarinnar og talar um hvort þingmaðurinn sé á móti EES-samningnum. Þetta höfum við fengið að heyra ítrekað í umræðu um þriðja orkupakkann og öll þessi mál: Bíddu, ef þú ætlar að gagnrýna samninginn eða einhverjar afleiðingar hans þá ertu bara á móti þessum samningi. Ertu ekki sömu trúar og ég að hann sé upphaf alls góðs? (DME: Svaraðu þá spurningunni.)

Herra forseti. Hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir kallar frammí: Svaraðu spurningunni. Já, ég er að svara spurningunni vegna þess að raunin hefur verið sú að þessi ríkisstjórn, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn áður, nú flokkurinn, hefur ráðið för, hefur skákað í skjóli þess að það mætti ekki gagnrýna EES-samninginn og það hvernig hann hefur þróast. Hv. þm. Jakob Frímann Magnússon hélt hér áðan frábæra ræðu, maður sem þekkir aðdragandann og samþykkt þessa samnings, og benti einmitt á að það hefði alltaf staðið til að menn fylgdust með því hvernig samningurinn þróaðist. Nú er hér verið að reyna að innleiða mál sem, eins og alltaf þegar um stórmál er að ræða, er sagt vera bara smámál og, eins og hæstv. ráðherra sagði, fjarstæða að verið sé að fela erlendum aðilum vald. Það stendur bara í frumvarpinu. Þetta er stutt frumvarp. Það kemur fram í textanum að Brussel- reglugerðir og lög verði æðri þeim sem eru samin hér á Alþingi. Á sama tíma hefur þessi ríkisstjórn er ekki treyst sér til að nýta þau ákvæði EES-samningsins, varnaglana, sem gerðu okkur kleift að koma í veg fyrir að hann gengi á hagsmuni okkar. Menn hafa ekki treyst sér enn að nýta 102. gr. Og hver eru svörin? Við viljum ekki raska rónni. Hinn heilagi EES-samningur er svo mikilvægur að við megum ekki einu sinni nýta þau réttindi sem hann felur í sér. Þess vegna veldur það mér áhyggjum að flokkurinn sé nú farinn að nýta talsmenn úr Samfylkingu og Viðreisn til að útskýra fyrir almenningi, (Forseti hringir.) með frösum frá evrópskum embættismönnum, hvers vegna við bara verðum að samþykkja þetta af því að annars séum við ekki að standa okkur í því að fylgja hinum heilaga samningi.