Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

svör við fyrirspurnum.

[15:08]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Nú hafa einhverjar 22 fyrirspurnir beðið svars í meira en 100 virka daga. Sú sem lengst hefur beðið er búin að bíða í 153 virka daga, merkilegt nokk, um verndartolla á franskar kartöflur. Mig langar að spyrja forseta, þar sem ráðherrar biðja oft um framlengingu á því að svara fyrirspurnum frá þinginu, hvort það gerist í einhverjum tilfellum að forseti segi nei í staðinn fyrir að kvitta auðveldlega undir framlengingu á svörum, hvort hann segi bara: Nei, þið fáið engan aukafrest?