Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

málefni eldra fólks.

[15:12]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Við hv. þingmaður höfum nú rætt þetta mál hér utan þingsalarins, enda mikilvægt mál og fjallar í grundvallaratriðum um það hvaða aðgang eldra fólk hefur að upplýsingum, bæði hvað varðar réttindi þess en líka það sem varðar almenna upplýsingagjöf sem snýr þá að þjónustu við eldra fólk. Fyrir sennilega um ári síðan setti ég á laggirnar nefnd til að vinna að því máli sem þingsályktunartillaga hv. þingmanns og fleiri hv. þingmanna lýtur að. Starfshópurinn er reyndar ekki búinn að skila mér sinni niðurstöðu en mér er ljúft og skylt að greina frá því sem þau hafa lagt til við mig og ég veit að verður niðurstaða hópsins, en það er að upplýsingagjöf til eldra fólks megi svo sannarlega bæta. Hvort það eigi að setja á fót embætti hagsmuna fulltrúa eldra fólks — sú nefnd sem ég skipaði setur spurningarmerki við það atriði og vann í rauninni með þeirri ágætu verkefnisstjórn sem hefur verið að undirbúa þingsályktunartillögu sem ég mælti fyrir hér fyrir páska um aðgerðaáætlun í málefnum hvað varðar þjónustu við eldra fólk. Þar inni hafa endað tvær aðgerðir, annars vegar sem snýr að aukinni upplýsingagjöf og þjónustu við heilabilað fólk og aðstandendur þess og hins vegar almennt um hvernig eldra fólk getur nálgast upplýsingar um réttindi sín og skyldur.

Þannig að niðurstaðan hjá hópnum er sú að fresta því að koma á hagsmunafulltrúa eldra fólks með frumvarpi, eins og hv. þingmaður nefndi hér áðan, og láta reyna á það að þessar tvær aðgerðir í aðgerðaáætluninni Gott að eldast komist í verk (Forseti hringir.) til að hægt sé að meta betur þörfina sem áhöld eru um samkvæmt henni.