málefni eldra fólks.
Virðulegur forseti. Það er einfaldlega niðurstaða þessa starfshóps að það sé skynsamlegra að byrja með þessum hætti. Starfshópurinn er hins vegar ekki að segja að það muni aldrei verða eða það sé óskynsamlegt að hér yrði komið á fót embætti hagsmuna fulltrúa eldra fólks heldur að ráðast í þessar aðgerðir sem eru einmitt til þess gerðar að vinna gegn jaðarsetningu eldra fólks og alveg ljóst að það sem hv. þingmaður nefnir hér um að fólk sé nr. 100 í röðinni o.s.frv., sem er ágætis myndlíking fyrir sumt af því sem má segja að skorti á í þjónustu, ekki síst þegar kemur að upplýsingaöflun eða því að fólk sé meðvitað um réttindi sín. Þá er þessum aðgerðum, í aðgerðaáætlun um þjónustu við eldra fólk, einmitt ætlað að bæta úr þessu. Ég biðla til hv. þingmanns að við gefum þessum aðgerðum tveimur, sem eru í þeirri ágætu aðgerðaáætlun, rými til þess að við fáum niðurstöður og gögn til að geta þá tekið þetta mál upp aftur ef þurfa þykir.