Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

efnahagsmál á Íslandi.

[15:22]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Rétt aðeins út af hagvextinum. Hann er fyrst og fremst vegna fjölgunar fólks. Hagvöxtur á mann er með því minnsta innan Evrópu ef við ætlum að fara í þann samanburð. Ég spurði hæstv. ráðherra um valdheimildir ríkissáttasemjara. Ég vil gjarnan fá svar við því. Það frumvarp var boðað í vor, því var lofað í vor, en við vitum það öll að það er ákveðinn ágreiningur innan ríkisstjórnarflokkanna, ekki síst á forystuflokkurinn í ríkisstjórn erfitt með að koma fram með þetta frumvarp. Hæstv. vinnumarkaðsráðherra sagði það í orðaskiptum sínum við þingmann Viðreisnar að þetta kæmi ekki fyrr en í haust. Ég er einfaldlega hrædd um að það sé of seint. Helsti óvissuþátturinn samkvæmt nýrri spá Landsbankans eru kjarasamningar.

Ríkisstjórnin er ekki bara að guggna á því að taka til í ríkisfjármálunum í fjármálaáætluninni, og það eru allir sem eru að segja það; Samtök atvinnulífsins, Félag atvinnurekenda, ASÍ, virtir hagfræðingar segja að það sé ekki nóg að gert. Það er heldur ekki verið að gera það sem þarf að gera í vinnumarkaðsmálum. Ríkisstjórnin er líka að guggna á því að eyða þeirri óvissu út, einum helsta óvissuþættinum sem tengist kjarasamningum. (Forseti hringir.) Við þurfum að nesta ríkissáttasemjara með þeim tólum og tækjum sem þarf til að koma á almennilegu vinnumarkaðslíkani og eyða óvissu.