málaflokkur hælisleitenda.
Herra forseti. Eins og ég hef margoft nefnt og hæstv. ráðherra virðist gera sér grein fyrir að einhverju leyti er málaflokkur hælisleitenda algjörlega stjórnlaus á Íslandi og við sjáum vandann bara vaxa og vaxa. Það sem af er þessu ári virðast fleiri einstaklingar hafa komið til Íslands að sækja hér um hæli heldur en til Danmerkur. Fleiri einstaklingar. Ef við lítum á þetta hlutfallslega þá er ásóknin hingað meira en tuttuguföld á við Danmörku sem áður var þekktur áfangastaður hælisleitenda í Evrópu. Ríkisstjórnin hefur ekki brugðist við á nokkurn hátt í samræmi við tilefnið því þetta er vandamál sem mun bara vaxa ef menn bregðast ekki við og það er auðvitað þegar farið að hafa veruleg áhrif, t.d. í heilbrigðisþjónustu, skólakerfinu og á húsnæðismarkaði þar sem ríkisvaldið eða sveitarfélög í samstarfi við ríkið leita að íbúðum eða herbergjum um allt og setja jafnvel út fólk sem þar var fyrir. Þetta hefur áhrif víða og minnir okkur á það að til að við getum hjálpað sem flestum þeirra sem eru í mestri neyð þá þarf að nálgast þetta af skynsemi en það þarf líka að hafa stjórn á aðstæðum. Það hefur þessi ríkisstjórn ekki. Málaflokkurinn er stjórnlaus eins og hæstv. ráðherra hefur reyndar viðurkennt. Einu viðbrögðin fram að þessu er litla útlendingafrumvarpið svokallaða sem náðist í gegn í fimmtu tilraun eftir að hafa verið þynnt út í hverju skrefi. Fram að því höfðu stjórnvöld fyrst og fremst gripið til ráðstafana sem voru til þess fallnar að auka á vandann. En það er þó hægt að bregðast við öðruvísi en bara með lagafrumvörpum, því að ég óttast að það sé löng bið eftir því að ríkisstjórnin geri eitthvað sameiginlega í málinu. Því spyr ég hæstv. ráðherra: Hvenær kemur að því að hæstv. ráðherra nýti þær reglugerðarheimildir sem hann hefur þó samkvæmt gildandi lögum til að bregðast við þessu ástandi?