málaflokkur hælisleitenda.
Herra forseti. Enn á ný kemur hæstv. dómsmálaráðherra með svar sem er bara mjög gott svar eins langt og það nær, vegna þess að það gefur til kynna að hæstv. ráðherra geri sér grein fyrir a.m.k. eðli vandans. Það er spurning hvort ríkisstjórnin geri sér almennilega grein fyrir umfanginu því að við sjáum það ekki, af viðbrögðunum að dæma, að slíkur skilningur sé til staðar. Ég er líka ánægður með að hæstv. ráðherra segi okkur hér að það sé von á einhverjum reglugerðarbreytingum sem geti hugsanlega gert eitthvert gagn í þessu samhengi, hjálpað til við að það náist stjórn á málaflokknum þannig að hægt sé að taka þær ákvarðanir sem best reynast í framhaldinu. En er engin von á heildarfrumvarpi í samræmi við vandann sem tekur á þessu? Ég geri ráð fyrir að svarið sé nei, svoleiðis að hæstv. ráðherra þarf ekki að verja löngum tíma í það. En hann mætti gjarnan segja okkur aðeins meira af því hvað hann getur gert. Jú, það er von á einhverjum reglugerðum, segir hæstv. ráðherra, en hefur hann stuðning við sína nálgun í ríkisstjórninni og hjá samstarfsflokkunum?