málaflokkur hælisleitenda.
Virðulegur forseti. Það blasir auðvitað við öllum sem fylgjast með pólitíkinni að á vettvangi ríkisstjórnarinnar er ekki alger samstaða í þessum málaflokki, þ.e. það eru mjög skiptar skoðanir á milli flokka um það hvernig við eigum að nálgast þessi mál. Það er nú þannig í þessum samsteypustjórnum sem hér eru gjarnan við völd að þá þarf að leita málamiðlana og eftir því sem flokkarnir eru fleiri í slíkri samsteypustjórn þá krefst það enn meiri málamiðlana. Það er auðvitað sá vegur sem maður er að feta sig eftir og það hefur gengið ágætlega í þessu samstarfi. Ég vænti þess að þær lagabreytingar og þær reglugerðarbreytingar sem nú koma og breytt afstaða hjá Útlendingastofnun, eða rökstuðningur, til þessa stóra hóps frá Venesúela muni hafa breytingar í för með sér. Ég tel reyndar að við þurfum að ganga lengra. Við höfum verið að skrifa frumvarp í ráðuneytinu sem tekur þá meira á ákveðnum séríslenskum reglum. Við skulum sjá hvert þau skref sem við erum að stíga núna færa okkur. Þá getum við endurmetið stöðuna þegar kemur fram á árið. (Forseti hringir.) Það má öllum vera ljóst að við getum ekki til lengri tíma búið við þessar erfiðu aðstæður sem hafa skapast í þessum málaflokki.