Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

almannatryggingar.

[15:34]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Í störfum okkar á þingi fáum við ýmsar ábendingar um skringilega hluti í lögum hingað og þangað. Nú hefur það gerst á undanförnum árum að öryrkjar hafa fengið aðeins meira frítekjumark, sem er gott og blessað, aðeins minni skerðingar á allar aukatekjur sem þeir afla sér. En það eru smá hliðarverkanir sem ég hef fengið ábendingar um sem mér finnst áhugaverðar. Ef öryrki gerist svo djarfur að verða sér úti um vinnu og fara að greiða í stéttarfélag og lendir síðan í slysi, getur ekki unnið, það gerist, þá fær viðkomandi greitt úr sjúkrasjóðum stéttarfélags. Allir aðrir myndu einfaldlega fá þann pening í vasann. En af því að viðkomandi er öryrki þá lendir hann í tekjuskerðingum vegna sjúkrasjóðsgreiðslna frá stéttarfélagi, sem mér finnst mjög áhugavert. Ég velti fyrir mér með hæstv. ráðherra hvort ráðherra finnst það vera réttlætanlegt að sjúkrasjóðsgreiðslurnar nái ekki einu sinni inn í frítekjumark vegna atvinnutekna, og ættu helst þess vegna að vera utan þeirra. Þannig að ég vildi spyrja hæstv. ráðherra hvort þetta sé eðlilegt, að lögin virki svona, og hvort ráðherra geti ekki einhent sér í að leiðrétta þetta í snarhasti.