almannatryggingar.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Ég vil kannski nálgast svarið aðeins víðar heldur en bara út frá þessu eina dæmi, en alveg ágætisdæmi sem hv. þingmaður tekur hér upp. Það eru mjög margar og flóknar reglur í kringum þetta kerfi og megingrundvallarreglan er sú að ef tekjur koma annars staðar frá þá, eftir að ákveðnum frítekjumörkum er náð, skerðir það þær bætur eða þær greiðslur sem koma frá ríkinu. Í grundvallaratriðum er ég sammála því að það eigi að koma til skerðinga á bótum, auðvitað innan ákveðinna marka, og þess vegna eru frítekjumörkin mikilvæg, þau eru eðlileg, þau eiga að virka sem hvatar, t.d. til þess að fólk fari að vinna, þess vegna hækkuðum við frítekjumark atvinnutekna um áramótin, svo dæmi sé tekið.
Það eru hins vegar inni í kerfinu alls konar tekjuskerðingar, og m.a. það sem hv. þingmaður nefnir hér, sem ég sé alveg ástæðu til að skoða heildstætt. En í grunninn er ég sammála því að ríkið sé ekki að borga í rauninni aukalega þegar tekjur eru að koma annars staðar frá, þ.e. það komi þá af þeim bótum sem viðkomandi á rétt á. En ætlar sá sem hér stendur að kippa þessu eina atriði sem hv. þingmaður nefndi í liðinn, eins og hann orðaði það? Alla vega ekki í dag, en við hv. þingmaður getum vissulega rætt þetta áfram. Við erum með fleiri mál sem hafa verið til skoðunar hvað þetta varðar og kannski er meginlínan sú að einfalda kerfið frá því sem það er í dag því að í dag er það allt of flókið og alveg ljóst að það þarf að fækka þeim tekjuskerðingum sem er í kerfinu.