almannatryggingar.
Forseti. Já, pínu fyrirsjáanlegt svar að skoða þetta heildrænt og þess háttar. Þetta eru tekjur sem viðkomandi hefur aflað sér, réttindi sem viðkomandi hefur aflað sér vegna atvinnutekna og ættu alla jafna að vera að koma í staðinn fyrir atvinnutekjur hvað varðar greiðslur úr sjúkrasjóði en í almannatryggingakerfinu lendir þetta ekki undir því frítekjumarki sem atvinnutekjur virka annars innan. Það er þess vegna sem ég vek athygli á þessu. Það væri hægt að kippa þessu bara þar inn og þá væri þetta bara lagað en einhvern veginn þarf að bíða enn eftir réttlæti og heildarendurskoðunin á ekki að klárast fyrr en eftir tvö ár sem mér finnst vera mjög áhugavert. Þetta á að vera markmið ríkisstjórnarinnar og klárað á kosningaári þar sem 16 milljarðar verða settir í þetta kerfi sem er gott og blessað, en ég veit ekki af hverju fólk sem er á örorkubótum þarf alltaf að bíða aðeins lengur. Þetta er skýrt dæmi sem væri hægt að laga einfaldlega með því að gera þessar greiðslur hluta af því sem telst sem atvinnutekjur (Forseti hringir.) og fella þær þannig undir frítekjumarkið.