Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

almannatryggingar.

[15:39]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir hér, þetta eru réttindi sem viðkomandi hefur aflað sér. En þetta snýst náttúrlega um það að þau réttindi eru þá að skerða þær bætur sem viðkomandi einstaklingur er með vegna þess að þar eru í rauninni aukafjármunir að koma inn til ráðstöfunar fyrir viðkomandi einstakling. Við þurfum svo sem ekki að hafa fleiri orð um akkúrat það. Við vitum að þetta kerfi er flókið. Það eru of margar tekjutengingar eins og staðan er í dag og það er það sem þessi heildarendurskoðun lýtur m.a. að. Ég held að það sé mikið fagnaðarefni. Ég er alveg sannfærður um að hv. þingmaður er sammála mér um það að við séum búin að tryggja fjármögnun fyrir þessa kerfisbreytingu. Þó svo að hún sé að koma í gagnið 2025 þá vonast ég til þess að við getum samþykkt lög hér á Alþingi, vonandi fyrir jólin, sem munu þá varða leiðina og hægt að vinna að undirbúningi á næsta ári fyrir þessar breytingar.