lífeyrisgreiðslur almannatrygginga.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Við erum í raun að halda áfram að ræða það sem var hér í fyrirspurn áðan. Er þetta sanngjarnt? Er þetta réttlátt? Ég er alveg sammála hv. þingmanni um það að það eru of miklir jaðarskattar þegar kemur að þessum málaflokki. Það er auðvitað eitt af því sem við erum að reyna að vinna að núna með endurskoðun á örorkulífeyriskerfinu. Við erum að reyna í fyrsta lagi að gera það einfaldara, erum að reyna að gera það sanngjarnara og erum að reyna að gera það réttlátara; reyna að gera það þannig að fólk skilji betur hvað gerist ef þú t.d. ferð í vinnu, 20% vinnu, 50% vinnu, 70% vinnu. Það er erfiðara í dag að skilja það en eðlilegt má teljast. Þess vegna hækkuðum við frítekjumark atvinnutekna um síðustu áramót, sem hv. þingmaður studdi og hafði talað fyrir alllengi. Það sama má segja um önnur frítekjumörk. Þeim er auðvitað ætlað m.a. að auka möguleika örorkulífeyrisþega eða ellilífeyrisþega, þegar um þá er að ræða, á að geta nýtt sér lífeyrisgreiðslur, fjármagnstekjur, atvinnutekjur o.s.frv.
Það sem hv. þingmaður nefnir hér, sem er þegar öryrki fer á eftirlaun — ég er þeirrar skoðunar að við þurfum að skoða betur þessi skil sem verða þarna á milli vegna þess að í sumum tilfellum virðist vera eins og fólk sé að lækka þegar það fer af örorku yfir á eftirlaun. Það er auðvitað eitthvað sem við þurfum að skoða. Ef ég man rétt er það nú eitt af þeim þingmannamálum sem hv. þm. Guðmundur Ingi Kristinsson hefur flutt hér á Alþingi og ég hef reyndar látið aðeins skoða í ráðuneytinu hjá mér og vonast til að við getum haft það líka til hliðsjónar í þeirri heildarendurskoðun sem í gangi er.