Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

lífeyrisgreiðslur almannatrygginga.

[15:46]
Horfa

félags- og vinnumarkaðsráðherra (Guðmundur Ingi Guðbrandsson) (Vg):

Hæstv. forseti. Ég verð eiginlega bara að byrja á því að biðja hv. þingmann afsökunar. Mér misheyrðist, það er alveg greinilegt, og verð að biðja hv. þingmann afsökunar á því. Að sjálfsögðu er það eitt af því sem við höfum verið að skoða, þetta með 25.000 kr. frítekjumarkið. Ég held að breytingin sem var gerð 2017 hafi verið jákvæð að mörgu leyti. Hún einfaldaði kerfið og gerði það skiljanlegra.

Við hækkuðum vissulega frítekjumark atvinnutekna í ellilífeyriskerfinu og þetta er eitthvað sem við höfum haft til skoðunar. Hv. þingmaður hefur spurt skriflegra fyrirspurna sem hafa líka verið til þess fallnar að ná í upplýsingar um þetta. Ef ég man rétt þá held ég að hver 5.000 kr. hækkun myndi kosta um milljarð. Þetta myndi auðvitað sérstaklega aðstoða fólk sem er í lægri tekjutíundunum. Ég held að við þingmaður séum sammála um að þetta sé kannski eitt af stóru verkefnunum; að halda áfram að gera betur þegar kemur að ellilífeyriskerfinu. Ég biðst aftur afsökunar á að hafa mögulega misheyrst svona herfilega illa.