Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

garðyrkjuskólinn á Reykjum.

[15:48]
Horfa

Guðrún Hafsteinsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Eins og alþjóð veit hefur vandræðagangurinn í kringum Garðyrkjuskólann á Reykjum í Ölfusi verið með öllum ólíkindum og hef ég nokkrum sinnum áður bent á það hér í ræðustól Alþingis. Á síðasta ári tók ráðherra ákvörðun um að allir starfsmenn á Reykjum svo og umsjón með húsakosti og landrými myndi færast yfir til Fjölbrautaskóla Suðurlands. Var þetta niðurstaðan eftir nokkurra ára vandræðagang og óánægju meðal starfsmanna Garðyrkjuskólans og nemenda.

Sú ákvörðun að höggva á þann vanda sem við skólann var með því að færa námið undir Fjölbrautaskóla Suðurlands var nauðsynleg og tel ég brýnt að það komi fram að bæði kennarar, nemendur og starfsmenn skólans hafa lýst ánægju með það og þá sérstaklega að hafa losnað undan því helsi sem Garðyrkjuskólinn hefur verið í. Ég vil nota tækifærið og hrósa stjórnendum Fjölbrautaskólans sérstaklega fyrir að hafa tekið mjög vel utan um starfsmenn og nemendur skólans og er það samstarf allt til fyrirmyndar. Hins vegar vil ég segja það að ég var á móti þeirri aðgerð að flytja námið undir Fjölbrautaskólann og er enn þeirrar skoðunar að farsælast hefði verið að viðurkenna að sameining Garðyrkjuskólans við Bændaskólann á Hvanneyri undir merkjum Landbúnaðarháskólans mistókst með öllu og ætti fólk að hafa kjark til að viðurkenna það og leyfa skólanum að blómstra sem sjálfstæða einingu, eins og hann hafði verið rekinn í áratugi með farsælum hætti.

Nú eru spurningar mínar þessar: Hefur Fjölbrautaskóla Suðurlands verið tryggt fjármagn með garðyrkjunáminu eftir að skólinn tók það yfir? Hefur skólanum verið bætt þau tæki sem Landbúnaðarháskólinn tók frá skólanum, og hefur meira að segja nýlega sótt fleiri? Hver er staðan varðandi húsakost og land skólans? Er komin heildstæð áætlun um uppbyggingu húsa og lands og er búið að tryggja fjármuni til hennar?