Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

garðyrkjuskólinn á Reykjum.

[15:50]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn og byrja á því að segja í upphafi að ég deili þeirri skoðun hv. þingmanns um mikilvægi þess að hafa öflugt garðyrkjunám í landinu. Ég vil hins vegar segja að ég deili ekki þeirri skoðun hv. þingmanns að það hafi verið röng ákvörðun að skólinn færi undir Fjölbrautaskóla Suðurlands. Almennt er ég þeirrar skoðunar að það séu mikil tækifæri fólgin í því að gera nákvæmlega það sem við erum að gera á Reykjum í samstarfi við Fjölbrautaskóla Suðurlands, þ.e. að leyfa sérhæfðu námi að dafna og tryggja tengingar þess við atvinnulíf undir hatti stærri skóla. Ég held einmitt, af því að flokkur hv. þingmanns hefur talað mest fyrir því að smærri stofnanir ætti að sameina, að tækifæri séu fólgin í því með öflugu garðyrkjunámi í tengslum við Fjölbrautaskóla Suðurlands og að hann fái að halda ákveðnu sjálfstæði þar.

Ráðuneytið hefur verið í gríðarlega góðu samstarfi og samvinnu við Fjölbrautaskóla Suðurlands og forsvarsfólk og staðarhaldara að Reykjum varðandi þennan flutning. Ég tek undir með hv. þingmanni um það að Fjölbrautaskólinn hafi staðið sig vel í þessu, en eins þeir sem starfað hafa að Reykjum. Í samvinnu við Fjölbrautaskóla Suðurlands höfum við tryggt fjármuni til að stíga inn þegar á hefur þurft að halda. Eðli máls samkvæmt hefur það ekki legið nákvæmlega fyrir þannig að við höfum þurft að stíga inn í með reglubundnum hætti. Við höfum líka sagt að það verði ráðist í fjárfestingar þegar kemur að tækjakosti og öðrum þeim búnaði sem þarna er. Síðan varðandi húsakost og framtíðaruppbyggingu á Reykjum, þá hefur verið hópur starfandi að kortleggja það eins og ég mun koma betur inn á í seinna andsvari mínu.