garðyrkjuskólinn á Reykjum.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið hér og það er gott að finna að hann deili þeirri skoðun með okkur íbúum austan Hellisheiðar að þessi góði skóli eigi að fá að dafna og vaxa í því umhverfi sem hann hefur gert frá stofnun, í 80 ár.
Ég ætla samt sem áður að leyfa mér að vera ósammála hæstv. ráðherra hvað það varðar að ég tel að námið í þessum skóla sé um margt ólíkt því sem er í Fjölbrautaskóla Suðurlands og hef kosið að líta svo á að það sé millileikur að námið hafi færst yfir til Fjölbrautaskólans. Ráðherra nefnir framtíðarhóp sem hann setti af stað. Eftir því sem ég best veit skilaði sá hópur af sér í lok síðasta árs. Ég hef ekki séð þá skýrslu né heyrt um hana fjallað. (Forseti hringir.) Mér leikur því forvitni á að vita hver staðan er á þeim hópi og hvort það sé ekki alveg öruggt að ráðherra ætli að tryggja framtíð garðyrkjunáms á Íslandi.