breyting á ýmsum lögum í þágu barna.
Herra forseti. Fagurt galaði fuglinn sá, segir í ágætu kvæði. Ég er nú einn af þeim þingmönnum sem áttu því láni að fagna að vera í þingmannanefnd um málefni barna. Hér er talað um réttindi barna, samhæfingu, samþættingu, betri aðbúnað, hagsæld og farsæld — nefnið það bara. Á sama tíma og hæstv. ráðherra hefur gefið sig út fyrir að vera besti vinur barnanna hefur fátækt íslenskra barna vaxið um 44% á síðustu sex árum — 44%. Er það liður í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins? Eru það mannréttindi barnanna okkar hér að vaxandi örbirgð og vaxandi fátækt skuli vera algerlega á fleygiferð undir stjórn hæstv. mennta- og barnamálaráðherra? Ég velti því bara fyrir mér þannig að ég spyr: Ef þetta er besti vinur barnanna, hæstv. ráðherra, hvernig er þá versti vinur barnanna þegar fátækt hér hefur vaxið um 44% á síðustu sex árum? Það er ekki hægt að segja að hér séu gæði á ferð þó svo að um sameiningu á milli stofnana sé að ræða þegar einstaklingurinn sjálfur þarf að bíða eftir því árum saman að raunveruleg úrræði séu til fyrir börnin í landinu, raunveruleg úrræði hvort sem lýtur að sálfræðiþjónustu, námi eða hverju einu öðru sem er. Tæplega 40% íslenskra barna eru að útskrifast hér illa læs eða með lélegan lesskilning en ég ætla að lofa hæstv. ráðherra að fá þá messu í næsta máli.