breyting á ýmsum lögum í þágu barna.
Virðulegur forseti. Ég og hv. þingmaður deilum því að vilja eftir fremsta megni gera það sem hægt er til að tryggja börnum á Íslandi sem best lífsskilyrði. Ég vil byrja á því að segja við hv. þingmann að staðreyndin er sú að það er mjög gott að vera barn á Íslandi og það er bara gott að segja það í þessum sal vegna þess að þannig er það. En staðreyndin er líka sú að það er á mjög mörgum sviðum þar sem við getum gert betur. Hv. þingmaður nefndi hér og gerði lítið úr mikilvægi þess að aðilar ynnu saman í málefnum barna þvert á kerfi, þvert á stofnanir. Ég er því algjörlega ósammála. Við erum hér að innleiða lög sem krefjast þess að allir aðilar sem vinna saman að málefnum barna tryggi samhæfða þjónustu. Það tekur tíma. Þess vegna erum við að áætla okkur fimm ára innleiðingartíma í þessi lög. Ég hvet hv. þingmann til að heimsækja þau sveitarfélög sem hafa verið í forystu við innleiðingu laganna og fá að heyra sögurnar þaðan af því að með samvinnu félagsþjónustu, skóla, heilbrigðiskerfis, af því að heilbrigðiskerfið hefur verið að koma sterkara inn núna, og eftir atvikum íþróttalífs, sem er líka að koma sterkara inn, höfum við einmitt verið að ná að grípa börnin í viðkvæmustu stöðunni, þ.e. með samvinnu á milli kerfa. Þannig að ég ætla ekki að sitja undir því frá hv. þingmanni að þessi lagabreyting sé ekki að stuðla að því að við séum að ná að grípa börnin okkar fyrr. Ég spyr þá bara á móti: Hverju vill hv. þingmaður breyta í þessari nálgun? Vegna þess að ég held að þetta sé mjög skynsamlegt. En erum við, ég og hv. þingmaður, ósammála um það að við getum gert betur? Nei, við getum alltaf gert betur og við eigum að gera betur þegar kemur að málefnum barna og þá vil ég sérstaklega nefna börn af erlendum uppruna í íslensku samfélagi vegna þess að þar held ég að við sem samfélag getum gert miklu betur. Við ætlum okkur að gera það og erum að undirbúa aðgerðir í því efni og það tengist ekki hvað síst þeim breytingum sem verið er að gera á skólakerfinu og með nýrri þjónustustofnun í menntamálum sem við munum ræða hér á eftir þessu máli.