breyting á ýmsum lögum í þágu barna.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svar við andsvari. Það er þá gott að heyra að búið sé að gera ráð fyrir því að farsældin verði skilgreind. Engu að síður myndi ég hvetja til þess að það verði þá alveg skýrt. Það er ekkert víst að allir átti sig á því út frá lestrinum í hverju þetta felst nema þá að vísað sé sérstaklega í það um hvað er að ræða. En ég bíð spenntur eftir því að heyra um og fylgjast með þessu máli þegar þessar rannsóknir og slíkt sem er á leiðinni kemur, að þá sé hægt að glöggva sig á því.