Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 97. fundur,  24. apr. 2023.

breyting á ýmsum lögum í þágu barna.

922. mál
[16:21]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil bara þakka hv. þingmanni og segja að ég er algerlega sammála henni varðandi þessi mál en segja þó, til að svara því hvenær við ætlum að fjárfesta í þessu, að við erum sannarlega að fjárfesta í þessu. Til að mynda varðandi greiningar hjá Ráðgjafar- og greiningarstöðinni hafa afköst þar verið stóraukin en eftirspurnin vex bara hraðar. Það hafa jafnframt verið áskoranir við að ráða mannskap til að sinna þessum greiningum þannig að jafnvel þó að sett væri fjármagn inn í stofnanirnar þá hefur það haft áhrif. Síðan hefur líka haft áhrif, svo maður sé algjörlega heiðarlegur, sérstaklega á Ráðgjafar- og greiningarstöðina, að húsakostur stofnunarinnar var ekki upp á marga fiska en fyrir tæpu ári síðan var hægt að koma henni í annað húsnæði og það sannarlega hafði áhrif á afkastagetu stofnunarinnar. Þau eru mjög jákvæð á að afkastagetan hafi vaxið enn meira jafnvel eftir að þau fluttu sig í nýtt húsnæði. Ég vil því ekki meina að þetta sé eingöngu fjármagnið. Þetta er mannekla, þetta er gríðarleg aukin eftirspurn eftir greiningum. Og þá þurfum við líka að spyrja okkur að því — og maður skynjar það sterkt þegar maður fer um landið og hittir aðila að það er að byrja að breytast, en við höfum allt of mikið verið að eyrnamerkja þjónustugreiningu, þ.e. að það sé ekki hægt að veita þjónustu fyrr en greiningarnar koma, og ég heyri það núna úr fleiri og fleiri skólum og frá fleiri og fleiri sveitarfélögum þar sem sagt er: Jú, það er ágætt að fara í greiningu en það mun ekki hafa nein áhrif á það hvernig við veitum þjónustu hér hvort barnið fer í greiningu eða ekki. Við látum vita ef það þarf að fara í greiningu eða ekki.

Við þurfum í auknum mæli að stíga þessi skref og í auknum mæli að tengja þessa þjónustu inn í skólana. Það er, vil ég meina, lykillinn að því að draga úr þessari aukningu á biðlistanum, (Forseti hringir.) m.a. hvernig okkur tekst að aðstoða skólana við að fá aukna þjónustu þar inn. Þannig að mér finnst vangavelturnar mjög góðar, spurningarnar góðar og ég bara fagna því að hv. þingmaður sé að taka þetta upp hér.